Sextán liða úrslitum Evrópudeildarinnar í fótbolta lauk í kvöld og þar með er ljóst hvaða átta lið verða í pottinum þegar dregið verður í átta liða úrslitunum á morgun. Manchester-liðin féllu bæði úr leik en Spánn á enn þrjú lið eftir í keppninni.
Liðin sem komusa áfram í átta liða úrslitin í kvöld eru: Athletic Bilbao, Valencia og Atlético Madrid frá Spáni, AZ Alkmaar frá Hollandi, Hannover 96 og Schalke 04 frá Þýskalandi, Metalist Kharkiv frá Úkraínu og Sporting Lissabon frá Portúgal.
Klaas-Jan Huntelaar var hetja þýska liðsins Schalke 04 sem tapaði 0-1 í fyrri leiknum á móti hollenska liðinu Twente og lenti einnig undir á heimavelli í kvöld. Huntelaar skoraði þrennu í leiknum og Schalke-liðið vann 4-1 og fór áfram.
Atlético Madrid, Hannover 96 og Valencia komust örugglega áfram en bæði Sporting Lissabon og Metalist Kharkiv komust áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli.
Úrslit og markaskorarar í Evrópudeildinni í dag:
Athletic Bilbao - Manchester United 2-1
1-0 Fernando Llorente (23.), 2-0 Oscar De Marcos (65.), 2-1 Wayne Rooney (80.)
= Athletic Bilbao komst áfram samanlagt 5-3
Udinese - AZ Alkmaar 2-1
1-0 Antonio Di Natale (3.), 2-0 Antonio Di Natale (15.), 2-1 Erik Falkenburg (31.)
= AZ Alkmaar komst áfram samanlagt 3-2
Hannover 96 - Standard Liege 4-0
1-0 Mohammed Abdellaoue (4.), 2-0 Sjálfsmark (21.), 3-0 Didier Konan Ya (73.), 4-0 Sergio Pinto (90.)
= Hannover 96 komst áfram samanlagt 6-2
PSV - Valencia 1-1
0-1 Adil Rami (47.), 1-1 Ola Toivonen (64.)
= Valencia komst áfram samanlagt 5-3
Manchester City - Sporting Lissbon 3-2
0-1 Matías Fernández (33.), 0-2 Ricky van Wolfswinkel (40.), 2-1 Sergio Agüero (60.), 2-2 Mario Balotelli, víti (75.), 3-2 Sergio Agüero (82.)
= Sporting Lissbon komst áfram á fleiri mörkum á útivelli
Besiktas - Atlético Madrid 0-3
0-1 Adrian Lopez (26.), 0-2 Falcao (83.), 0-3 Eduardo Salvio (90.)
= Atlético Madrid komst áfram samanlagt 6-1
Olympiakos - Metalist Kharkiv 1-2
1-0 Ivan Marcano (15.), 1-1 Cristian Villagra (81.), 1-2 Marko Devic (86.)
= Metalist Kharkiv komst áfram á fleiri mörkum á útivelli
Schalke 04 - Twente 4-1
0-1 Willem Janssen (14.), 1-1 Klaas-Jan Huntelaar (29.), 2-1 Klaas-Jan Huntelaar (57.), 3-1 Jermaine Jones (71.), 4-1 Klaas-Jan Huntelaar (81.)
= Schalke 04 komst áfram samanlagt 4-2
Þrenna Huntelaar kom Schalke áfram | Öll úrslitin í Evrópudeildinni í kvöld
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar

Mest lesið


„Menn vissu bara upp á sig sökina“
Körfubolti

Kulusevski missir af úrslitaleiknum gegn Man United
Enski boltinn

Stjarnan þurfti vítaspyrnukeppni gegn Kára í Akraneshöllinni
Íslenski boltinn


Bestu mörkin: Uppgjör fyrstu fimm umferða Bestu deildarinnar
Íslenski boltinn




Afturelding lagði ÍA á Akranesi og ÍBV hefndi sín
Íslenski boltinn
Fleiri fréttir
