Hvers vegna bendir Ronaldo á lærið á sér þegar hann fagnar? 13. apríl 2012 12:15
Cristiano Ronaldo hefur skorað 40 mörk á leiktíðinni fyrir Real Madrid í spænska fótboltanum – einu meira en Argentínumaðurinn Lionel Messi hjá Barcelona. Portúgalinn Ronaldo skoraði þrennu í 4-1 sigri Real Madrid í grannaslagnum gegn Atlético Madrid þar sem að annað mark hans í leiknum var stórkostlegt. Fögnuður Ronaldo eftir það mark vakti einnig athygli en þar dróg hann upp aðra skálmina á stuttbuxunum og benti á olíuborinn lærvöðvann á hægri fæti. Samkvæmt spænskum fjölmiðlum er Ronaldo að svara „glósum" frá liðsfélaga sínum Antonio Adán varamarkverði Real Madrid. Adán á að hafa sagt við Ronaldo að hann þyrfti að einbeita sér meira að styrktaræfingum fyrir fæturna – þar sem að allur tími Ronaldo í lyftingasalnum færi í „strandæfingar" fyrir efri hlutann. Ronaldo hefur farið á kostum í vetur með Real Madrid. Hann hefur skorað 20 mörk á útivelli og er hann sá fyrsti sem nær þeim áfanga í deildarkeppninni á Spáni. Hann er einnig sá fyrsti sem skorar sjö þrennur á sama tímabilinu. Real Madrid er með fjögurra stiga forskot á Barcelona í deildarkeppninni fyrir lokasprettinn. Liðin eigast við þann 21. apríl á heimavelli Barcelona. Á laugardaginn leikur Barcelona á útivelli gegn Levante sem er í fimmta sæti deildarinnar. Real Madrid á leik á heimavelli gegn Sporting Gijón sem er í þriðja neðsta sæti.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Körfubolti Brenndi á sér höndina áður en hann kýldi í borðið Sport Mætti til leiks berfættur og ber að ofan í snjókomunni Sport Hefur aldrei séð svona ofbeldi: „Þetta var allt of mikið“ Sport Moyes ældi alla leiðina til Eyja Enski boltinn Barði sig til blóðs eftir tap á HM Sport Jafnt í ótrúlegum átta marka leik á Old Trafford Enski boltinn Romano segir fólki að fylgjast með Alberti í janúar Fótbolti „Í dag er dagurinn sem þú fæddist, í dag er dagurinn sem þú munt deyja“ Enski boltinn Mbappé vann PSG og fær níu milljarða Fótbolti Fleiri fréttir Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Milljarðs evra munur á liðunum: Börsungar lentu í brasi gegn þriðju deildar liði Garnacho skaut Chelsea áfram í undanúrslit Sjáðu flottasta mark í heimi árið 2025 Bonmatí og Dembele best í heimi Vísa á bug fullyrðingum Bruno sem hafa valdið fjaðrafoki Rodgers tekinn til starfa í Sádi-Arabíu Gestgjafar HM bjóða Íslandi heim í leik Hlaut 21 árs dóm fyrir að aka inn í skrúðgönguna í Liverpool Mbappé vann PSG og fær níu milljarða Bjarni segir Newcastle stærra félag en Tottenham Romano segir fólki að fylgjast með Alberti í janúar Moyes ældi alla leiðina til Eyja Bróðirinn sendir Amorim skilaboð: „Frelsið Kobbie Mainoo“ „Besta frammistaða United undir stjórn Amorim“ Segir að Salah muni sjá eftir því að fara í janúar Sjáðu mörkin úr ótrúlegu átta marka jafntefli á Old Trafford Skemmtilegt fyrir fólkið heima og United verðskuldaði sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Jafnt í ótrúlegum átta marka leik á Old Trafford Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Vildi ekki skýra ummælin um verstu 48 klukkutímana frekar Rodgers á leið til Sádi-Arabíu Maresca hafi tekið blaðsíðu úr bók Salah og gert sér óleik Guardiola gagnrýndi Foden þrátt fyrir markið „Finnst þér ekki eins og hann sé þjakaður af pressu yfir því hvað hann sé lélegur?“ Fyrirliði Newcastle eftir tapið fyrir Sunderland: „Þetta er svo vandræðalegt“ Sjáðu klaufalegt sjálfsmark Woltemade í grannaslagnum og öll hin úr enska Amorim verður ánægður ef Mainoo ræðir við hann um lán „Sé ekkert annað en að dýrasti leikmaður deildarinnar verði áfram á bekknum“ Sjá meira