Schweinsteiger: Við erum búnir á því Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 25. apríl 2012 22:47 Schweinsteiger fagnar í kvöld. Nordic Photos / Getty Images
Bastian Schweinsteiger tryggði Bayern München sæti í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu með því að skora úr fimmtu spyrnu liðsins í vítaspyrnukeppninni gegn Real Madrid í kvöld. Eftir æsispennandi viðureign í Madríd í kvöld þurfti vítaspyrnukeppni til að knýja fram úrslit og þar reyndust þeir þýsku sterkari. „Við erum reyndar allir algjörlega búnir á því en erum afar ánægðir," sagði hann við þýska fjölmiðla eftir leikinn. „Það eina sem ég hugsaði um í vítaspyrnukeppninni var að koma boltanum í markið." Úrslitaleikurinn fer fram á Allianz-Arena, heimavelli Bayern, og ríkir því sérstaklega mikil ánægja í herbúðum liðsins með árangurinn í kvöld. „Við eigum einn leik eftir á heimavelli og hann viljum við vinna." Manuel Neuer, sem varði frá þeim Cristiano Ronaldo og Kaka í vítaspyrnukeppninni, var einnig ánægður. „Við höfðum mikið fyrir þessu. Í báðum þessum leikjum vorum við síst lakari aðilinn og á endanum áttum við skilið að komast áfram." „Ég vildi auðvitað verja eins margar vítaspyrnur og ég gat en auðvitað hefur heppni eitthvað að segja í þeim efnum," bætti hann við.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Dönsk landsliðskona eignaðist barn tólf vikum fyrir tímann Handbolti Viðtökurnar á Anfield munu ekki breyta neinu Fótbolti Kærastan tók eftir því að eitthvað var að Handbolti „Örugglega nokkrir Fantasy-þjálfarar ósáttir“ Enski boltinn Guardiola segir að dómararnir hafi verið á móti City í áratug Enski boltinn „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Íslenski boltinn „Haaland er þetta góður“ Enski boltinn Tilþrif 5. umferðar: Jukic stal senunni Körfubolti Dagskráin í dag: Sú elsta og virtasta, enska úrvalsdeildin og Extra Sport Lygilega jafnt á toppnum eftir sigur AC Milan Fótbolti Fleiri fréttir Guardiola segir að dómararnir hafi verið á móti City í áratug Viðtökurnar á Anfield munu ekki breyta neinu „Örugglega nokkrir Fantasy-þjálfarar ósáttir“ Lygilega jafnt á toppnum eftir sigur AC Milan „Haaland er þetta góður“ Spánarmeistararnir halda í við toppliðið „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Viðar Ari lagði upp tvö í Íslendingaslag Daníel Leó hetjan í dramatískum sigri Ísak Bergmann og félagar nálgast Evrópusæti Annað tap spútnikliðsins kom í Manchester Loksins West Ham-sigur í London Kristian Nökkvi skoraði í Íslendingaslagnum Arna og Sædís nánast öruggar með silfrið Bölvun fylgir úrslitaleik Meistaradeildarinnar Hólmbert skoraði í Suður-Kóreu og stjórnaði sigursöngvum eftir leik Leggur til breytingar og vill að fótboltinn læri af handboltanum Úlfarnir ráku Pereira Patrick Vieira ekki lengur þjálfari Mikaels Egils Mark frá Messi kom ekki í veg fyrir oddaleik Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Engin klipping á næstunni: Miður sín en með augun á 8. desember Skoraði fyrsta markið sama dag og hann flutti í þriðja sinn á þremur mánuðum Vara við því að „töfradrykkur“ Haaland geti valdið matareitrun Eins og á gamlárskvöldi á Íslandi inni á leikvanginum Ótrúleg varnartölfræði Arsenal í október Sjáðu brot af því besta úr enska boltanum í dag Juventus landaði sigri í fyrsta leik Spalletti Liverpool loks á sigurbraut á ný Sjá meira