Strákarnir töpuðu illa í úrslitaleiknum - 16 ára stelpurnar í 4. sæti Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. maí 2012 11:09 Maciej Baginski. Mynd/Vilhelm
Íslenska 18 ára landsliðið í körfubolta varð að sætta sig við silfrið á Norðurlandamóti unglinga í Solna í Svíþjóð eftir 41 stigs stórtap á móti Finnum í leiknum um gullið. Þetta var fyrsta og eina tap íslenska liðsins á mótinu. Sextán ára stelpunum tókst á sama tíma ekki að ná í bronsið en þær töpuðu fyrir Dönum í leiknum um þriðja sætið. Finnar unnu 41 stigs sigur, 105-64, á íslenska 18 ára landsliðinu í úrslitaleiknum. Finnar tóku völdin strax í fyrsta leikhluta sem þeir unnu 28-15 og voru síðan komnir 21 stigi yfir í hálfleik, 50-29. Vonir íslensku strákanna dóu þó endanlega í upphafi þriðja leikhluta en Finnar byrjuðu hann á 20-1 spretti og komust í framhaldinu í 72-30. Maciej Baginski og Martin Hermannsson voru stigahæstir í íslenska liðinu með 16 stig hvor en Emil Karel Einarsson skoraði 13 stig. Íslenska liðið tapaði fráköstum 26-57 en Finnar tóku einmitt 26 sóknarfráköst. Sextán ára stelpurnar töpuðu 56-62 á móti Dönum í leiknum um þriðja sætið en íslensku stelpurnar unnu leik liðanna í riðlakeppninni. Danir voru alltaf skrefinu á undan í þessum leik. Sara Rún Hinriksdóttir skoraði 24 stig og tók 8 fráköst og Guðlaug Júlíusdóttir var með 12 stig. Sandra Lind Þrastardóttir bætti síðan við 7 stigum og 8 fráköstum.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Handbolti Ósætti við úrelta löggjöf: „Sennilega eina þjóðin eftir í heiminum“ Sport „Ég á Íslandi líf mitt að þakka“ Íslenski boltinn „Vil miklu frekar eiga feril í MMA heldur en að vinna skrifstofustarf“ Sport Húbba Búbba kippt af dagskrá: „Það eina sem ég spila í Víkinni er fótbolti“ Íslenski boltinn Raya hetjan er Skytturnar lögðu rútunni í Bergamo Fótbolti „Ein besta markvarsla sem ég hef séð“ Fótbolti Tyson segist ekki berjast vegna peninganna Sport Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira