Lundekvam: Hagræðing úrslita á sér stað í norska boltanum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 9. júlí 2012 17:00 Lundekvam í baráttu við Ryan Giggs. Nordicphotos/Getty
Norska knattspyrnusambandið tók þá ákvörðun í gær að fresta viðureign Ull/Kisa og HamKam í b-deild norska boltans vegna gruns um hagræðingu úrslita. Norska knattspyrnusambandið boðaði til blaðamannafundar vegna málsins í gær þar sem fram kom að um einsdæmi væri ekki að ræða. Tveir leikmenn Follo í C-deildinni eru grunaðir um hagræðingu úrslita í viðureign Østsiden og Follo þann 24. júní síðastliðinn sem Østsiden vann 4-3. Claud Lundekvam, sem lék á árum áður með Southampton í ensku úrvalsdeildinni, segir í viðtali við NRK að um alvarlegt vandamál sé að ræða. Aðspurður hvort hann viti um tilfelli þar sem norskir leikmenn hafi reynt að hagræða úrslitum vegna spilaskuldar segir Lundekvam: „Já, ég veit um slík tilfelli. Mörg tilfelli." Tíðindi gærdagsins, sem vakið hafa mikla athygli í Noregi, koma honum ekki á óvart. „Nei. Þetta á sér stað í Noregi. Það væri barnalegt að halda öðru fram," sagði Lundekvam. Yngve Hallén, forseti norska knattspyrnusambandsins, vill ekkert segja um hvort um fleiri tilfelli sé að ræða en þau tvö sem greint hefur verið frá. „Ég óttast ekki að vandamálið sé stórt en það er ekki útilokað að hagræðing eigi sér víðar stað en í þessum tilfellum."
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Ballið búið hjá Chiefs og Mahomes meiddist á hné Sport Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti „Troðslan sem þið sjáið núna verður ekki toppuð“ Körfubolti Mætti til leiks berfættur og ber að ofan í snjókomunni Sport Emelía valin efnilegust hjá danska toppliðinu: „Einstök gleðisprengja“ Fótbolti Brasilíumenn byrja vel undir stjórn Menezes - myndband Fótbolti Pogba dreymir um að eiga dýrasta úlfalda heims Sport Brjálaðist og sendi dómarann á sjúkrahús Fótbolti Upphitun japanska fótboltamannsins er algjört augnakonfekt Fótbolti Katrine Lunde fékk draumaendinn sinn og þær norsku urðu heimsmeistarar Handbolti Fleiri fréttir Upphitun japanska fótboltamannsins er algjört augnakonfekt Brasilísk samvinna færði Real lífsnauðsynlegan sigur Henderson heiðraði minningu Jota eftir fyrsta markið sitt í fjögur ár Brjálaðist og sendi dómarann á sjúkrahús Emelía valin efnilegust hjá danska toppliðinu: „Einstök gleðisprengja“ Mikael Egill og félögum tókst ekki að stoppa toppliðið Calvert-Lewin jafnaði fyrir Leeds í lokin Hákon fann skotskóna í fyrsta sinn síðan í október „Gott fyrir svæðið, félagið og stuðningsmennina“ Sunderland vann nágrannaslaginn fyrir norðan Glódís fékk hvíld og leiðir liðið bráðum út á nýjan heimavöll Danir og Svíar eiga í deilum um kornunga drengi Haaland með tvennu í öruggum útisigri City Sangaré og Hudson-Odoi hrelltu Tottenham Eigendur Juventus vildu ekki selja og nú þurfa leikmenn að sanna sig Þjálfari Orra Steins látinn fara Sjáðu sjálfsmörkin sem björguðu Arsenal og hetju Liverpool skora tvö David Silva: Ég var sá fyrsti sem Beckham vildi fá til Inter Miami Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag „Ég bið Lionel Messi innilega afsökunar“ „Stundum þarf maður heppni“ Tvö sjálfsmörk færðu Arsenal fimm stiga forkost á toppnum Tómas Bent og félagar með sex stiga forystu á toppnum „Verstu 48 klukkustundirnar“ síðan að hann kom til Chelsea Evrópumeistararnir í vandræðum með botnliðið Raphinha reddaði málunum fyrir Börsunga Brynjólfur með langþráð mark Fulham vann í markaleik á Turf Moor Ian Rush lagður inn á sjúkrahús Viktor Bjarki skoraði enn eitt markið Sjá meira