Frábær lokahringur hjá Ólafi | komst inn á úrtökumót PGA 21. september 2012 20:31 Ólafur Björn Loftsson. seth
Ólafur Björn Loftsson úr Nesklúbbnum náði frábærum árangri í dag þegar hann tryggði sér keppnisrétt á 1. stigi úrtökumótsins fyrir bandarísku PGA mótaröðina í golfi. Ólafur lék lokahringinn á 67 höggum eða -3 og náði hann að koma sér í hóp 38 efstu sem komust áfram úr þessari forkeppni sem fram fór í Dallas. Hann lék hringina þrjá á samtals tveimur höggum yfir pari vallar og endaði hann í 34. sæti af um 80 keppendum. Kylfingur.is greinir frá. Ólafur Björn fékk fimm fugla á hringum í dag, og tvo skolla. Fyrsta stig úrtökumótsins fer fram 16.-19. október. Til þess að komast alla leið á PGA mótaröðina þarf Ólafur að komast í gegnum 1., 2., og 3 stig úrtökumótsins. Næsta verkefni Ólafs er á Englandi þar sem hann mun reyna við 1. stigið á úrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina.
Golf Mest lesið Sló átta ára dóttur sína eftir tap Sport Van Gerwen kemur trans konunni til varnar: „Þetta er svo sárt“ Sport Fundað um framtíð Guardiola í vikunni Enski boltinn Amorim getur ekki byrjað alveg strax í nýju vinnunni Enski boltinn Teitur spilaði með manni sem dekkaði Jordan og drakk kippu af bjór fyrir æfingar Körfubolti Gagnrýnir blaðamann sem gerði grín að útliti hennar Sport McIlroy skaut niður dróna Golf „Ég vil ekki deyja í sjúkrarúmi heldur í hringnum“ Sport Íslandsmeistarinn úr leik og þrettán ára gutti stal senunni Sport „Ég bað ekki um fjögur stig en fékk fjögur stig“ Sport Fleiri fréttir McIlroy skaut niður dróna „Orðinn þreyttur á Venna strax á fyrstu holu“ McIlroy kemur „úr felum“ eftir óvenjulegar æfingabúðir Golfstjarnan mætti á upp svið með Trump Kylfingur blindur á auga eftir golfbolta Hundur hljóp inn á og stal golfkúlu Bales Sigurður sótti silfur fyrstur Íslendinga til Makaó: „Rosalega stoltur“ Íslendingur efstur í Arkansas: „Hann er nýnemi!“ Sjá meira