ELM hættir 15. nóvember 2012 16:06 Lísbet Sveinsdóttir hefur rekið ELM í tólf ár ásamt tveim öðrum konum. Reksturinn var flókinn og nú hefur hann verið lagður niður.
Verslunin ELM, sem hefur verið starfrækt á Laugavegi 1 í tólf ár, hefur hætt starfsemi en hún var eftirlætisverslun margra kvenna. Á næsta ári verður nýr og spennandi rekstur í húsinu.Lísbet Sveinsdóttir, myndlistarmaður og einn eigenda ELM, segir að hönnun ELM hafi verið seld um allan heim. Fyrirtækið hafi vaxið mikið og orðið flókið í rekstri."Þegar upphafsfólkið er ekki lengur með puttana í öllu vill starfsemin fljóta en fatabransinn er margslunginn," útskýrir Lísbet. "Við fundum ekki mikið fyrir kreppunni, hún kom hægt til okkar. Íslenskar konur voru tilbúnar til að kaupa íslenska hönnun og búðin hér á landi gekk ágætlega," segir Lísbet sem telur að þær þrjár sem ráku ELM, það er Erna Steina Guðmundsdóttir, Matthildur Halldórsdóttir og hún sjálf, muni hasla sér völl, hver á sínu sviði."Ég ætla að sinna myndlistinni en mun hafa fatahönnunina með fram en það verður ekki svona stórt. Ég sé það fyrir mér minna og hagkvæmara en ELM," segir hún. Lísbet segir að íslenskar konur standi sig ákaflega vel varðandi hérlenda hönnun og séu duglegar að kaupa hana. "Það mætti vera meiri stuðningur við þessi litlu hönnunarfyrirtæki því hann mundi skila sér aftur til þjóðfélagsins. Það er margt klárt fólk að útskrifast í þessari grein," bætir hún við. "Það hefur verið jákvæð samkeppni á þessum markaði og margir ungir hönnuðir hafa verið að skapa sér atvinnutækifæri. Ég býst við að nýja hönnunarhúsið í gamla Sautján-húsinu muni ýta undir frekari listsköpun." Lísbet segist ekki vita hvar hægt verði að nálgast fatahönnun sína í framtíðinni en það komi í ljós."Við Erna Steina eigum húsið við Laugaveg og ég geri ráð fyrir að við munum gera eitthvað skemmtilegt í þessu húsi þótt það verði ekki fyrr en eftir eitt ár. Við erum að teikna og draga upp eitthvað nýtt sem verður örugglega skemmtilegt og hluti af þeirri hönnun sem við einblínum á í framíðinni. Ég var ein af þeim sem komu að Sólon á sínum tíma og sé fyrir mér músík í ELM-húsinu. Þar er góður bakgarður sem býður upp á að njóta listarinnar. Maður á að endurskapa sig og breyta til á tíu til tólf ára fresti."
Mest lesið „Síðustu tíu árin hafa verið erfið“ Lífið Stjörnulífið: „Grín sem gekk allt of langt“ Lífið Bjössi og Dísa í carnival stemningu í miðbænum Lífið Aðalsteinn og Elísabet selja íbúðina Lífið Ofboðslega falleg berskjöldun Menning Samdi CIA lag Scorpions, Wind of Change, til að fella Sovétríkin? Lífið Flottasti garður landsins - taktu þátt! Lífið samstarf Bestu hlutverk Michaels Madsen: Óþokki með viskýrödd og uppáhald Tarantino Bíó og sjónvarp Sumarsalat sem lætur bragðlaukana dansa Lífið Varð mjög hræddur en fann huggun í húmornum Lífið Fleiri fréttir Drottningar landsins kjörnuðu sig með Ernu Bergmann Marteinn Högni nýr framkvæmdastjóri Húrra „Núna þori ég miklu meira“ „Þetta kom mér jafnmikið á óvart eins og öðrum“ Stálu senunni í París Byrjaði fjögurra ára í búningaleik og hætti aldrei Katrín og Inga Rut í stjórn Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs Það allra heitasta í sumarförðuninni Sjá meira