Umboðssala fyrir felgur 28. febrúar 2012 00:01 Valdimar Sigurjónsson er stofnandi og eigandi Dekkjasölunnar. Hann bendir á heimasíðu fyrirtækisins, www.dekkjasalan.is.
Dekkjasalan, að Dalshrauni 16 í Hafnarfirði, býður upp á þá þjónustu að fólk sem á dekk og eða felgur getur komið með vöruna í fyrirtækið þar sem gerður er umboðssölusamningur. Dekkjasalan auglýsir svo vöruna, selur og leggur andvirðið að frádregnum sölulaunum inn á reikning viðkomandi. Valdimar Sigurjónsson, eigandi fyrirtækisins, segir að verulega hafi komið á óvart hversu mikil þörf væri á umboðssölu fyrir felgur. "Í byrjun fór þetta rólega af stað enda aðaláherslan lögð á dekk. Þegar í ljós kom hversu mikil þörf væri á skipulögðum markaði fyrir felgur þá var ákveðið að auka við þá þjónustu og núna eru um tvö þúsund felgur á skrá hjá okkur, ásamt því að fylgihlutir eins og hjólkoppar, felgumiðjur og fleira er farið að tínast til," segir Valdimar en þess má geta að töluvert úrval er af stökum felgum sem er hugsað fyrir þá sem skemmt hafa eina úr ganginum. "Þegar við sáum umfangið í felgunum þá gerðum við samninga við alla helstu birgja í innflutningi á dekkjum og getum boðið upp á mikið úrval af nýjum dekkjum á samkeppnishæfu verði og að sjálfsögðu er úrvalið mikið í notuðu dekkjunum. Einnig er töluvert til af dekkjum á felgum, ballanserað og klárt til undirsetningar," segir hann. Kostirnir við að kaupa felgurnar hjá Dekkjasölunni eru að þar eru felgur yfirfarnar og gengið úr skugga um að þær séu í lagi og þær passi. Einnig er boðið upp á að fólk geti mátað og sjái þannig hvernig heildarpakkinn lítur út áður en af kaupum verður. "Mikið er um að fólk sé að versla sín á milli á netinu eða í smáauglýsingum með felgur. Þessi kaup eru vandasöm og geta leitt af sér mörg vandamál og aukakostnað," segir Valdimar og bendir á að til að mynda sé ekki nóg að huga eingöngu að gatadeilingu heldur geti stærð felgunnar, breidd, offset, backspace, felguboltar, miðjugat og fleira skipt lykilatriði til að felgur af einum bíl passi á annan. "Fyrir utan þau tæknilegu atriði sem máli skipta þá er oft ekki allt sem sýnist, felgur sem útlitslega líta vel út geta verið skakkar eða gallaðar. Komið hefur fyrir að felgur sem við höfum neitað að taka í umboðssölu vegna skekkju, dúkka síðan upp í smáauglýsingum þar sem ekki er tekið fram að þær séu gallaðar eða í raun ónýtar," segir Valdimar. Eins og áður sagði eru allar felgur á Dekkjasölunni sem koma í umboðssölu yfirfarnar og þær sem ekki standast það nálarauga eru ekki teknar í sölu. Ef eitthvað sleppur í gegnum nálaraugað er sjö daga skilafrestur og er það aðallega hugsað þegar felgur eru sendar út á land eða eru ekki settar undir á staðnum. Allar vörur á heimasíðunni eru staðsettar í vöruhúsi fyrirtækisins að Dalshrauni 16 í Hafnarfirði þar sem hægt er að nálgast þær ásamt því að fyrirtækið býður upp á að koma vörum til flutningsfyrirtækja til sendinga á landsbyggðina kaupendum að kostnaðarlausu. Dekkjasalan er opin frá klukkan 8 til 18 virka daga, til klukkan 21 þriðjudaga og fimmtudaga og frá klukkan 10 til 16 laugardaga. Sjá www.dekkjasalan.is
Mest lesið Í fullkomnu frelsi: „Þar sem er heyskapur er ég“ Atvinnulíf Ræðst í byggingu átta húsa í Hvammsvík Viðskipti innlent Einn vinsælasti tengiltvinnbíll Íslendinga snýr aftur Samstarf „Væri samt mjög til í að vera betri söngvari“ Atvinnulíf BYKO opnar nýja og glæsilega timburverslun Samstarf Gerðu tungumálarassíu hjá reiðhjólaverslunum Neytendur „Við bara tókum íslensku brjáluðu bjartsýnina á þetta“ Atvinnulíf Fjórðungur Z-kynslóðarinnar hyggst flytja til útlanda Atvinnulíf Hagnaðist um tvo milljarða: Ljóst að greinin megi ekki við hækkunum Viðskipti innlent „Þetta er afnotagjald“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Einn vinsælasti tengiltvinnbíll Íslendinga snýr aftur BYKO opnar nýja og glæsilega timburverslun Ný íbúðabyggð með betri loftgæðum Drægnikvíðastillandi dreki sem byggir á fornri frægð Bein útsending: Stafrænar lausnir í heilbrigðisþjónustu Greiðsluáskorun Lukkuhjól hlaðið vinningum á opnun Raflands Vetrarferð á verðlaunuðum rafbíl Iðnaðarhurðir sem henta íslenskum aðstæðum Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Slippfélagið eflir þjónustu með gervigreind Sjá meira