Lífið

Er með glútenóþol

Heilbrigð og hraust Miley Cyrus segist hafa grennst vegna þess að hún má ekki borða glúten eða mjólkurvörur.
nordicphotos/getty
Heilbrigð og hraust Miley Cyrus segist hafa grennst vegna þess að hún má ekki borða glúten eða mjólkurvörur. nordicphotos/getty
Söng- og leikkonan Miley Cyrus hefur sætt nokkurri gagnrýni fyrir holdafar sitt undanfarnar vikur. Einhverjir halda því fram að söngkonan þjáist af lystarstoli en Cyrus hefur vísað gagnrýninni á bug.

„Það eina sem ég þjáist af er glúten- og mjólkuróþol. Þetta hefur ekkert með þyngd að gera, aðeins heilsu mína. Glúten er óhollt og í dag borðaði ég páskamáltíð sem var holl og saðsöm. Heilbrigði er hamingja," skrifaði Cyrus á Twitter-síðu sína. Þar mælti hún jafnframt með því að aðdáendur hennar prófuðu glútenlaust fæði í nokkra daga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×