Meðal viðskiptavina Advania eru mörg stærstu og öflugustu fyrirtæki og stofnanir landsins.
„Advania sérhæfir sig í gerð flottra vefja fyrir fyrirtæki og stofnanir og má nefna vefi stóru bankanna þriggja sem dæmi um vefsíður í LISA-vefumsjónarkerfinu frá Advania. Einnig erum við mikið í að hanna og smíða vefverslanir, þjónustuvefi og öpp," upplýsir Sigrún Eva.
Hún segir nú mikið rætt um öpp og vefsíður í smátækjum, líkt og símum og snjalltölvum. „Gott dæmi um símavef er m.reebokfitness.is og dæmi um app er Bensínvaktin frá Advania fyrir Android-stýrikerfið. Þá er mikið farið að hanna og útfæra vefsíður í því sem kallast á ensku Responsive Design en slíkir vefir aðlaga sig að skjástærð móttökutækja," segir Sigrún Eva og nefnir til skoðunar einn frægasta Responsive Design vefinn sem er Bostonglobe.com.
„Vefir og öpp eru kjörin viðbótarþjónustuleið fyrir fyrirtæki til að nálgast viðskiptavini sína og komast nær kúnnanum."

„Með tengingu við bakendakerfi losna starfsmenn fyrirtækja við að tvíslá inn gögn og vefurinn því eins og framlenging af viðskiptakerfinu. Dæmi um góða slíka vefi af ýmsum stærðum og gerðum og með mismunandi tæknilegu flækjustigi eru eymundsson.is, skor.is, lindesign.is, orkan.is, stod2.is og sunfilm.is," útskýrir Sigrún Eva.
Advania heldur einnig úti vefversluninni velkomin.is. „Þar geta lítil og nýstofnuð fyrirtæki fengið litla og staðlaða vefi á góðu verði í sjálfsafgreiðslu. Í júní verða freistandi tilboð í gangi en þá eru vefir á velkomin.is kynntir sem vara mánaðarins með helmingsafslætti af stofnkostnaði."