Borko.
Born To Be Free.
Kimi Records.
Borkó er Björn Kristjánsson. Born to be Free er önnur platan hans í fullri lengd, en sú fyrri, Celebrating Life, kom út snemma á árinu 2008 bæði hjá Kimi Records og Morr Music í Þýskalandi.
Þó að það séu komin fjögur og hálft ár frá síðustu plötu þá hefur Borkó verið mjög virkur á íslensku tónlistarsenunni undanfarið og meðal annars verið meðlimur í hljómsveitum eins og Seabear, FM Belfast og Skakkamanage. Að auki var hann á sínum tíma meðlimur í hinni merkilegu sveit Rúnk.
Tónlist Borkós er frekar hæggeng og yfirveguð. Helsti styrkur plötunnar felst í fínum lagasmíðum og fjölskrúðugum útsetningum. Borkó notar margs konar hljóðfærasamsetningar. Benna Hemm Hemm-legur lúðrablástur heyrist í nokkrum lögum, strengjahljóðfæri gegna mikilvægu hlutverki og svo byggir hann skemmtilega undir sum lögin með hljómborðum og forritun. Raddútsetningarnar eru líka flottar.
Eins og hjá mörgum öðrum tónlistarmönnum í dag þá má heyra áhrif í tónlist Borkós frá alls konar ólíkri tónlist úr tónlistarsögunni, allt frá 70s poppi yfir í raftónlist síðustu ára. Lögin eru misgóð, þau bestu (Born to be Free, Hold Me Now, Sing to the World?) eru frábær og það er ekkert vont lag á þessari plötu. Á heildina litið er Born to be Free stórfín plata frá vaxandi tónlistarmanni.Trausti Júlíusson
Niðurstaða: Borkó snýr aftur fjórum árum seinna með fína plötu.
