Nýr Kia til höfuðs Nissan Juke 29. janúar 2013 19:00 Lofar góðu af myndum að dæma
Verður kynntur á bílasýningunni í Genf í mars. Kia mun kynna nýjan og sportlegan bíl á bílasýningunni í Genf í byrjun mars og lofa myndir af honum góðu. Kia hefur sjálft látið þær í té svona til auka aðeins spennuna fyrir honum. Þessum bíl er meðal annars ætlað það hlutverk að keppa við Nissan Juke jepplinginn og er ekki ósvipað form á þeim tveimur. Bíllinn virðist liggja einhversstaðar á milli stallbaks og jepplings og útlitið hans er skemmtilega djarft og framsækið. Fleiri upplýsingar um bílinn, svo sem um vélbúnað, liggja ekki fyrir og bíður sýningarinnar í Genf. Á myndunum að dæma er enginn B-póstur í bílnum fyrir aftan hurðirnar og afar smár gluggi þar fyrir aftan, eins og títt er með sportbíla. Afturendi bílsins er ári bólginn kringum afturhjólin og skottlínan há. Grillið á bílnum er talsvert frábrugðið öðrum Kia bílum. Nýrnalaga formið heldur sér þó en er mjög teygt og mjótt. Í heildina má segja að erfitt sé að greina að þetta sé bíll frá Kia, en gefur ef til vill tóninn um það sem frá kóreska framleiðandanum kemur á næstunni. Það væri ekki til tjóns ef marka má myndirnar.Hár afturendi og lítill hliðar- og afturgluggiÖrmjótt grill en heldur samt nýrnaforminu
Mest lesið Bróðir Dags B „orðlaus“ yfir Kristrúnu Innlent Spítalar yfirfullir af látnum mótmælendum Erlent „Klikkuð“ norðurljós fyrir utan Selfoss Innlent Stofna ný samtök gegn ESB aðild Innlent Óttast innrætingu íslamista í breskum háskólum Erlent Þrír handteknir vegna gruns um íkveikju Innlent Nýtt myndband af banaskotinu: „Helvítis tík“ Erlent Miklar tafir vegna áreksturs í Vesturbæ Innlent Gæsluvarðhaldskröfu yfir grunuðum barnaníðingi hafnað Innlent Barn flutt á slysadeild með áverka eftir flugelda Innlent