Handbolti

Þórey Rósa með fimm mörk í mikilvægum sigri

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Þórey Rósa Stefánsdóttir.
Þórey Rósa Stefánsdóttir. Mynd / Stefán
Team Tvis Holstebro vann frábæran sigur á Danmerkurmeisturum Randers, 32-29, í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Liðin höfðu sætaskipti í deildinni og er Team Tvis nú í þriðja sætinu með 22 stig. Midtjylland er á toppnum með 27 stig og Viborg, lið Óskars Bjarna Óskarssonar, í öðru sætinu með 25 stig.

Þórey Rósa Stefánsdóttir skoraði fimm mörk fyrir Team Tvis en þær Auður og Rut Jónsdætur voru ekki á meðal markaskorara liðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×