Umfjöllun og viðtöl: Akureyri - Haukar 18-20 Birgir H. Stefánsson skrifar 4. febrúar 2013 18:30 Sigurbergur Sveinsson. Mynd/Anton
Haukar héldu áfram sigurgöngu sinni í N1 deild karla í handbolta eftir tveggja marka sigur á Akureyri, 20-18. Haukar unnu níu síðustu deildarleiki fyrir HM-frí og tóku upp þráðinn aftur í kvöld. Sigurbergur Sveinsson er mættur í slaginn með Haukum og átti flottan leik í kvöld en hann skoraði átta mörk í leiknum. Bergvin Þór Gíslason var markahæstur hjá Akureyri með sex mörk en liðið var án Bjarna Fritzsonar. Eftir nokkuð langt hlé var komið að því aftur að N1 deild karla færi af stað. Umferðin byrjaði síðasta laugardag með leik ÍR og Vals en fyrsti leikur kvöldsins var viðureign Akureyrar og Hauka. Heimamenn höfðu fengið til sín Hörð Fannar Sigþórsson frá Færeyjum en á móti misst frá sér Bjarna Fritzson í meiðsli. Gestirnir í Haukum mættu norður með sitt sterkasta lið fyrir utan það að Gísli Kristjánsson var fjarverandi vegna veikinda. Leikurinn fór nokkuð furðulega af stað og afar illa gekk hjá báðum liðum að koma boltanum í netið. Eftir 13. mínútna leik var staðan orðin 1-4 Haukum í vil og heimamenn tóku leikhlé enda gekk lítið sem ekkert upp sóknarlega hjá þeim og Aron í marki hauka var með rúmlega 80% markvörslu. Leikhléið virtist þó virka og leikmenn Akureyrar mættu loksins almennilega til leiks og þegar 19 mínútur voru liðnar af leiknum var staðan orðin 7-6 og þá var komið að Haukum að taka leikhlé. Það virkaði þó líklegast ekki alveg jafn vel og Aron þjálfari Hauka hafði vonast til en þegar liðin gengu inn í klefa í hálfleik var staðan 11-9 fyrir Akureyri. Það var nokkuð svipað í boði í seinni hálfleiknum. Sóknarleikur beggja liða var mistækur og þá sérstaklega hjá heimamönnum sem voru í tómu tjóni og lítið sem ekkert gekk hjá þeim að koma boltanum í netið. Giedrius Morkunas hafði komið inn í mark Hauka fimm mínútum fyrir hálfleik og sá var heldur betur í stuði en hann endaði með 14 varin skot á ca. 35 mínútum. Þegar tæpar tíu mínútur voru eftir af leiknum voru Haukar komnir með fimm marka forustu á meðan heimamenn höfðu aðeins náð að skora þrjú mörk á síðustu 25 mínútum leiksins. Akureyringar reyndu hvað þeir gátu til að klóra í bakkann undir lokin en Haukarnir gáfu ekki færi á sér og lönduðu á endanum tveggja marka sigri, 18-20. Sigurbergur Sveinsson: Goggi kom rosalega flottur inn„Þetta var svona allskonar leikur svolítið,“ sagði Sigurbergur Sveinsson nokkuð kátur eftir sigur á Akureyri í kvöld fyrir norðan. „Þú sérð það að Akureyri búnir að skora einhverjar tuttugu mínútur eða meira í seinni hálfleik.“ Það verður ekkert tekið af Haukum að varnarleikur þeirra var flottur í kvöld sem og frammistaða markmanna liðsins og þá sérstaklega honum Giedrius Morkunas. „Goggi kom rosalega flottur þarna inn í lokin. Þetta er strákur sem kom til okkar, konan hans er að spila með kvennaliðinu. Svo er þetta bara hörku markmaður sem er búinn að standa sig mjög vel í vetur.“ Hvað með frammistöðu liðsins sóknarlega, pásan aðeins að sitja í mönnum? „Já gæti verið, þetta var svona aðeins upp og ofan. Það vantaði smá kraft í þetta en þetta var nóg. Það er alltaf erfitt að koma hingað, hér er alltaf stemming og erfitt að spila hér.“ Aron Kristjánsson: Sigurvilji og karakter sem landaði þessu„Sóknarleikurinn bar þess merki að það er búið að vera langt frí,“ sagði Aron Kristjánsson þjálfari Hauka strax eftir sigurleik kvöldsins gegn Akureyri. „Menn eru að spila sig inn í mótið aftur en varnarleikur beggja liða og markvarsla var frábær í kvöld. Maður getur sagt sem svo að markmenn drógu nokkuð vígtennur úr sóknarmönnum enda að verja hvað eftir annað úr góðum færum. Þeir eiga bara hrós skilið fyrir frábæran leik. Kukobat var mjög sterkur í byrjun leiks sem og Aron sem byrjaði alveg frábærlega en svo dettur hann niður og eftir að hann fékk á sig nokkur í röð þá ákvað ég að skipta Giedrius inn. Það var heldur betur skipting sem skipti sköpum enda stóð hann sig frábærlega. Sigurbergur spilaði sig inn í leikinn og óx ásmegin þegar leið á leikinn og Elías Már átti frábæran leik líka þangað til að hann meiddist. Það var sigurvilji og karakter sem landaði þessu í seinni hálfleik, við vildum ekkert gefa hér og ætluðum að sækja sigur.“ Sævar Árnason: sóknarleikurinn hikstaði verulega í seinni háfleik„Eftir svona langa pásu þá er svona bragur af þessu,“ sagði Sævar Árnason eftir tap á heimavelli gegn Haukum. „Við sáum það þegar ÍR og Valur voru að spila á laugardaginn að það var mikið kapp en ekki alltaf fallegur handbolti, þetta var hugsanlega svipað hér.“ „Við erum oft á þessum tíma alveg sérstaklega ryðgaðir þar sem við eigum erfiðara með að sækja æfingarleiki en önnur lið fyrir sunnan. Við vorum lengi í gang í byrjun en komum svo frábærlega inn í leikinn og náðum góðum tökum á honum. Við spilum sterka vörn og erum með góða markvörslu allan leikinn en sóknarleikurinn hikstaði verulega í seinni hálfleik.“ Hörður Fannar var að spila sinn fyrsta leik í kvöld en þarf að fara af velli eftir rúmlega átta mínútur, er eitthvað vitað hver staðan er? „Hann er upp á spítala núna í myndatöku en það kíkti læknir á hann áðan sem vildi meina að liðþófi og krossband hafi sloppið og að þetta sé tognun á ytra liðbandi. Vonandi er þetta ekkert meira en það.“
Olís-deild karla Mest lesið Fáránlegt eða klókt hjá Kristófer? „Ef það má þá gerir fólk það“ Körfubolti „Þetta verður bara veisla fyrir vestan“ Íslenski boltinn Freyr á erfitt með að lýsa ógleymanlegu kvöldi Fótbolti „Það er æðislegt að kveðja húsið svona“ Körfubolti Afar stolt eftir tapið gegn Íslandi Fótbolti Dagskráin í dag: Úrslitaleikir í Bestu, enski boltinn rúllar og DocZone fylgist með öllu Sport „Við erum ekki á góðum stað“ Sport Uppgjörið: N-Írland - Ísland 0-2 | Varnarjaxlarnir tryggðu sigur Fótbolti Ráðast örlög Aftureldingar inni í höll? Íslenski boltinn Brassi tekur við af Billups Körfubolti Fleiri fréttir Afturelding komst upp að hlið Hauka Seldu bleika búninginn hennar Herrem fyrir meira en milljón „Leið vel þegar ég fór inn úr færinu“ Uppgjörið FH - Haukar 27-26 | Birgir Már tryggði FH sigur eftir spennutrylli Bernard fór mikinn en Valsmenn sluppu með sigurinn Fyrsti sigur Þórsara síðan í byrjun september Ómar Ingi með fullkomnan leik í Meistaradeildinni Guðjón Valur og lærisveinar hársbreidd frá því að vinna Kiel Hlakka til að sjá Viktor Gísla aftur og senda honum skilaboð Neyddar í sömu stöðu og Ísland og límdu melónur á skóna Hatar hvítu stuttbuxurnar Fjölga stórmótum landsliða í handboltanum Allt jafnt í bikarslag íslensku stelpnanna Orri fagnaði í Íslendingaslag í Meistaradeildinni Hjartavandamál halda Reyni frá keppni Stórar breytingar á Evrópukeppnum í handbolta Framarar töpuðu aftur á heimavelli í Evrópudeildinni Magdeburg komst örugglega áfram í sextán liða úrslitin Íslensku strákarnir áberandi í Evrópudeildinni „Stærri og sterkari en liðin sem við þekkjum hérna heima“ Viktor til liðs við frænda sinn og bróður Uppgjörið: Portúgal - Ísland 26-25 | Annar eltingaleikur íslenska liðsins endar með öðru tapi Kom að fjórtán mörkum í stórsigri á Leipzig Unnu seinni leikinn en eru úr leik „Langar að segja að ég hafi aldrei verið hrædd en var það allan tímann“ Viggó markahæstur í góðum sigri Erlangen Eins marks sigur Eyjamanna í Mosfellsbænum Donni með skotsýningu Átta marka tap FH í Tyrklandi Fækkar í starfsteyminu vegna fjárhagskragga Sjá meira