Handbolti

Björgvin Páll og félagar unnu frábæran sigur í EHF-keppninni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Björgvin Páll Gústavsson og félagar í þýska handknattleiksliðinu Magdeburg unnu flottan sigur á Dedeman Bacau, 33-25, á heimavelli en leikurinn var hluti af riðakeppni EHF-keppninnar.

Leikurinn var nokkuð spennandi í fyrri hálfleiknum og hafði Magdeburg þriggja marka forskot í hálfleik, 16-13.

Það var mikill munar á spilamennsku liðanna í þeim síðari og juku heimamenn jafnt og þétt við forskot sitt sem gerði það að verkum að félagið vann átta marka sigur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×