Handbolti

Kiel ekki í vandræðum með Neuhausen

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Aron Pálmarsson í leik með Kiel.
Aron Pálmarsson í leik með Kiel. Nordic Photos / Getty Images
Kiel endurheimti tveggja stiga forystu á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta með öruggum sigri á Neuhausen, 29-21.

Aron Pálmarsson skoraði tvö mörk fyrir Kiel í dag en Guðjón Valur Sigurðsson ekkert. Alfreð Gíslason er þjálfari Kiel sem leiddi með sex mörkum í hálfleik, 13-7.

Rhein-Neckar Löwen, lið Guðmundar Guðmundssonar, er í öðru sæti deildarinnar með 41 stig en bæði toppliðin hafa spilað 24 leiki. Flensburg er í þriðja sæti með 37 stig en á leik til góða.

Füchse Berlin, lið Dags Sigurðssonar, er svo í fjórða sæti með 35 stig en efstu þrjú lið deildarinnar vinna sér þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×