Örlög Seat ráðast á árinu Finnur Thorlacius skrifar 24. mars 2013 11:45 Snotur Seat Bocanegra
Afkoma Seat skánaði á árinu en ef hagnaður næst ekki á árinu verður merkið lagt niður. Það er ekki mikil þolinmæði á heimavelli Volkswagen samstæðunnar. Þar gengur flest í haginn og ef eitthvað gerir það ekki fer hnífurinn fljótt á loft. Það á sannarlega við um Seat, en örlög spænska bílamerkisins munu ráðast á þessu ári. Seat er eina vörumerkið í Volkswagen samsteypunni sem ekki skilar hagnaði. Ef ekki tekst að snúa tapinu í hagnað á þessu ári verður Seat merkið lagt niður. Reksturinn gekk reyndar betur á síðastliðnu ári en oftast áður, en bara ekki nóg að mati stjórnar Volkswagen. Afkoma Seat skánaði á síðasta ári og reksturinn var ekki langt frá því að vera í jafnvægi undir stjórn nýs forstjóra og 650 milljón evra fjárfestingar í framleiðslu, niðurskurði og hagræðingu í rekstri og markaðsátaki. Útlfutningur á Seat bílum jókst og salan jókst um 22 prósent á Þýskalandsmarkaði og um 16,6 prósent í Mexíkó svo dæmi séu nefnd. Seat er nú seldur í 77 löndum alls. En þótt staðan hafi batnað á Þýskalandsmarkaði þá dróst bílasala Seat saman í Evrópu um 16 prósent. Þar munar mjög um bágt efnahagsástand á helstu mörkuðum Seat í S. Evrópu, þ.e. Spáni, Ítalíu og Grikklandi.
Mest lesið Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí Erlent Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Innlent Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Innlent „Dýrlegt veður eins langt og séð verður“ Veður Verðhækkanir varpa skugga á grillsumarið mikla Innlent Laupur vekur mikla athygli sundlaugagesta í Árbæjarlaug Innlent Kona réðst á pizzasendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent