Vigdís Finnbogadóttir var meðal ánægðra gesta sem fjölmenntu á opnun sýningar Þórhildar Jónsdóttur í Eiðisskeri, sýningarsal Seltirninga á Eiðistorgi í gær.
Meðal verka á sýningunni eru andlitsmyndir af persónum úr Njálu en þær hefur Þórhildur dregið upp eftir lýsingum úr bókunum og eigin túlkun á þeim. Sýningin er opin alla virka daga frá klukkan 10-19 nema föstudaga er opið til klukkan 17. Sýningarsalurinn er inn af Bókasafni Seltjarnarness og er aðgangur ókeypis.