Lét drauminn rætast Finnur Thorlacius skrifar 9. apríl 2013 15:15
Keypti uppáhaldsbílinn Oldsmobile 442 af árgerð 1969 í Bandaríkjunum. Haustið 2012 lét Eiríkur Ingvarsson gamlan draum rætast og keypti Oldsmobile 442 fornbíl af árgerð 1969 frá Bandaríkjunum. Eiríkur hafði átt tvo Oldsmobile bíla þegar hann var ungur. Eiríki fannst þó ávallt 442 bíllinn mest spennandi af öllum Oldsmobile bílum. Stafirnir 442 standa fyrir fjögurra hólfa blöndung, fjögurra gíra skiptingu og tvöfat pústkerfi. Oldsmobile 442 er sambærilegur bíll og Pontiac GTO og Chevrolet Seville SS, sannkallaðir kraftabílar.Leitin hófstEiríkur hafði leitað, ásamt Brynjari syni hans, að rétta bílnum á uppoðsvefnum Ebay en fékk svo Ingimar hjá IB áSelfossi í lið með mér og þá fóru hjólin að snúast. Tveimur mánuðum síðar var bíllinn kominn til landsins og á skráningarnúmerið X-442. "Það var mjög spennandi ferli að kaupa bílinn og ekki síður þegar við settum hann á lyftuna hjá IB og grandskoðuðum hann og í ljós kom að allt var meira og minna endurnýjað. Það er viss áhætta fólgin í því að kaupa bíl á þennan hátt og einhverjir hafa víst brennt sig á því", sagði Eiríkur.Er frá "muslecar"-tímabilinuOldsmobile 442 var fyrst framleiddur 1964 en það ár hófst einmitt svokallað "musclecar"-tímabil þar sem amerískir bílaframleiðendur kepptu í hestaflafjölda, hraða og snerpu. Mælikvarðinn var hversu fljótir bílar voru í hundraðið eða hversu snöggir kvartmíluna. Hestöflum fjölgaði ár frá ári eða allt þar til um 1972 að farið var að spá í bensíneyðslu og mengun bíla. Framleiðslu Oldsmobile 442 var hætt árið 1985.Álíka flókið að gera við og hjólbörurTæknilega séð eru þessir bílar hálfgerðar risaeðlur miðað við bíla í dag og félagar mínir sem þekkja þessa bíla vel ganga að viðgerðum á þeim líkt og á hjólbörum. Eiríkur segir að það sem hann fái út úr því að eiga fornbíl sé að miklu leiti félagsskapur annara bílaáhugamanna og bílaklúbbarnir, sem standa fyrir dagskrá allt árið. Þeir koma saman á bílunum á sumrin við ýmis tækifæri og þá er alltaf gaman. Það að fara á góðviðrisdegi á rúntinn og kaupa sér í ser einnig gefandi og þá er gjarnan spiluð önnur tónlist en hljómar vanalega í flölskyldubílnum.Oldsmobile 442 á heimaslóð við Ölfusána á Selfossi
Mest lesið Foreldrar sextíu barna vilji leikskólastjórann burt Innlent Hrikalega spenntur að spreyta sig á nýjum vettvangi Innlent Ellert B. Schram er fallinn frá Innlent „Ég get horft í augun á ykkur“ Innlent Grjóthörð sparnaðarráð til Kristrúnar með ástarkveðju frá FA Innlent „Það á auðvitað að fara að lögum“ Innlent Fimm ára leyfi frá borginni til að fara á þing Innlent Maðurinn hafi talið sig vera að fara að hitta stúlku á fermingaraldri Innlent Lenti í kófi og ók í veg fyrir tvo vörubíla Innlent Sautján ára máli Amöndu Knox lýkur með sakfellingu Erlent