Handbolti

Team Tvis á leið í úrslitaleikinn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Þórey Rósa Stefánsdóttir.
Þórey Rósa Stefánsdóttir. Mynd/Pjetur
Team Tvis Holstebro er í góðri stöðu eftir sjö marka sigur á Midtjylland í fyrri leik liðanna í undanúrslitum EHF-bikarkeppni kvenna í handbolta.

Þórey Rósa stefánsdóttir skoraði þrjú mörk fyrir Team Tvis í leiknum en Rut Jónsdóttir ekkert. Auður Jónsdóttir er einnig á mála hjá liðinu.

Team Tvis sem var með örugga forystu allan leikinn. Staðan í hálfleik var 19-10 og náði Midtjylland aldrei að ógna forystu gestanna.

Síðari leikurinn fer fram í Holstebro um næstu helgi en sigurvegarinn mætir annað hvort Metz frá Frakklandi eða rúmenska liðinu Zalau í úrslitaleiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×