Handbolti

Svíar pökkuðu Pólverjum saman

Kim Andersson er byrjaður að spila með Svíum á nýjan leik.
Kim Andersson er byrjaður að spila með Svíum á nýjan leik.
Svíar eru komnir með tveggja stiga forskot á toppi 5. riðils í undankeppni EM í handbolta. Svíar unnu sannfærandi sigur á Póllandi, 28-21, í kvöld.

Svíar með fullt hús eða sex stig eftir þrjá leiki. Pólland í öðru sæti með fjögur stig og bæði lið líklega á leið á lokamótið í Danmörku.

Ungverjar eru einnig með sex stig og fullt hús eftir sterkan heimasigur á Króatíu í 4. riðli. Króatar í öðru sæti með fjögur stig.

Portúgal er í öðru sæti 1. riðils með þrjú stig efti jafntefli gegn Sviss. Spánn á toppnum með sex stig. Sviss með eitt stig.

Úrslit:

Ungverjaland-Króatía 20-18

Sviss-Portúgal 26-26

Svíþjóð-Pólland 28-21




Fleiri fréttir

Sjá meira


×