Handbolti

Frækinn sigur lærisveina Patreks

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Austurríska landsliðið í handbolta, sem Patrekur Jóhannesson þjálfar, vann í gær frábæran sigur á Serbíu í undankeppni EM 2014.

Leiknum lauk með þriggja marka sigri heimamanna, 31-28, en hann fór fram í Graz.

Momir Ilic skoraði tólf mörk fyrir Serba en það dugði ekki til. Staðan var 17-16 fyrir Serba í hálfleik en Austurríkismenn náðu forystunni á ný um miðjan seinni hálfleik og héldu undirtökunum allt til loka.

„Ég verð að hrósa mínum leikmönnum," sagði Patrekur í samtali við fjölmiðla eftir leik. „Það er ekki sjálfgefið að svo lítil handboltaþjóð eins og Austurríki vinni risaveldi eins og Serbíu."

„Mér fannst mest til strákanna koma þegar þeir gáfust ekki upp, þrátt fyrir að lenda þremur mörkum undir. Þeir sýndu mikin karakter með því að koma til baka og vinna leikinn."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×