Handbolti

Magnaður sigur í Maribor

Alexander var magnaður í seinni hálfleik.
Alexander var magnaður í seinni hálfleik. Mynd/Vilhelm
Íslenska landsliðið í handknattleik vann magnaðan sigur, 28-29, á Slóvenum í Maribor í kvöld. Íslenska liðið átti magnaða endurkomu í síðari hálfleik og vann frækinn sigur.

Strákarnir mættu ekki nógu vel stemmdir til leiks og voru að elta allan fyrri hálfleikinn. Sóknarleikurinn alls ekki nógu beittur og hvorki Aron né Alexander náðu að skora í fyrri hálfleik.

Markverðirnir okkar vörðu þess utan aðeins fjóra bolta á meðan Skof varði 15 bolta í slóvenska markinu. Hann var með 65 prósent markvörslu í fyrri hálfleik sem er mögnuð frammistaða.

Þrátt fyrir þessar staðreyndir var munurinn aðeins fjögur mörk, 13-9, í hálfleik og Ísland enn inn í leiknum.

Strákarnir komu til baka í seinni hálfleik. Alexander komst í gang sem og Aron í markinu. Jafnt var á með liðunum á lokamínútunum en Ísland komst yfir í fyrsta skipti er ein og hálf mínúta var eftir.

Guðjón Valur skoraði sigurmark leiksins 30 sekúndum fyrir leikslok. Slóvenar töpuðu boltanum í lokasókninni og íslensku strákarnir fögnuðu.

Fyrirliðinn Guðjón Valur bestur í dag og tók oft af skarið ásamt því að klára sín skot vel. Alexander frábær í seinni hálfleik og Snorri átti fína spretti. Ólafur Bjarki átti fína innkomu í seinni hálfleik.

Íslenska liðið er komið með þriggja stiga forskot í riðlinum og stefnir hraðbyri á EM í Danmörku.


Tengdar fréttir

Alexander enn í miklu basli með öxlina

Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari segir að það hafi verið talsvert púsluspil að velja íslenska landsliðshópinn fyrir tvo mikilvæga leiki gegn Slóveníu í undankeppni EM 2014.

Kári Kristján spilar í Maribor

Línumaðurinn Kári Kristján Kristjánsson fór í aðgerð vegna góðkynja æxlis í baki fyrir rúmum mánuði síðan. Hann er búinn að jafna sig og mun spila leikinn mikilvæga gegn Slóvenum í undankeppni EM í dag.

Erfiðasta ákvörðunin að skilja Arnór eftir

Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari valdi ekki Arnór Gunnarsson, leikmann þýska B-deildarliðsins Bergischer, í landsliðið sem mætir Slóveníu í undankeppni EM 2014.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×