Handbolti

Ólafur hjá Flensburg til 2015

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Ólafur Gústafsson hefur skrifað undir nýjan samning við Flensburg og verður nú hjá liðinu til 2015.

Ólafur kom til Flensburg frá FH fyrr á þessu tímabili eftir að Arnór Atlason varð fyrir því óláni að slíta hásin. Ólafur hefur staðið sig vel og er nú verðlaunaður með nýjum samningi.

„Ólafur hefur tekið miklum framförum á þeim stutta tíma sem hann hefur verið hjá okkur," sagði þjálfarinn Ljubomir Vranjes í samtali við heimasíðu Flensburg.

„Þess fyrir utan er hann sterk persóna sem er ungur og afar efnilegur. Ég hlakka til að fylgjast með honum og starfa með honum á næstu árum."

„Ég er stoltur og hlakka til að halda áfram að læra af því að spila í bestu deild heims," sagði Ólafur sjálfur. „Þetta er meira en bara tækifæri fyrir mig. Ég mun gefa allt sem ég á."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×