Handbolti

Hildur söðlar um í Þýskalandi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hildur í leik með félagsliði sínu.
Hildur í leik með félagsliði sínu. Mynd/Heimasíða Blomberg-Lippe
Hildur Þorgeirsdóttir er á leið til þýska liðsins Koblenz þegar tímabilinu lýkur í vor.

Þetta kemur fram á mbl.is í dag. Hildur er nú á sínu öðru tímabili með Blomberg-Lippe í Þýskalandi en hafnaði fyrr á þessu ári nýju samningstilboði frá liðinu.

Karen Knútsdóttir er einnig á mála hjá Blomberg-Lippe en hún er einnig á leið frá félaginu þegar samningur hennar rennur út í sumar. Báðar eru leikmenn íslenska A-landsliðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×