Handbolti

Ólafur með sex í dramatískum leik

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ólafur og félagar fagna sigrinum í kvöld.
Ólafur og félagar fagna sigrinum í kvöld. Mynd/Heimasíða Kristianstad
IFK Kristianstad er komið með yfirhöndina í undanúrslitaeinvíginu gegn Sävehof í sænska karlahandboltanum. Kristianstad vann 29-27 sigur í framlengdum leik liðanna í kvöld.

Heimamenn í Sävehof höfðu undirtökin framan af og leiddu í hálfleik 14-9. Gestirnir með Ólaf Guðmundsson í broddi fylkingar skoruðu þrjú fyrstu mörkin í síðari hálfleik og að loknum venjulegum leiktíma var staðan jöfn 24-24.

Kristianstad leiðir í einvíginu 2-1 en næsti leikur fer fram á heimavelli Kristianstad á miðvikudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×