Handbolti

Þórey Rósa og félagar í úrslitin

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Þórey Rósa Stefánsdóttir í leik með íslenska landsliðinu.
Þórey Rósa Stefánsdóttir í leik með íslenska landsliðinu. Mynd/Stefán
Team Tvis Holstebro er komið í úrslitaleikinn um danska meistaratitilinn í handbolta eftir sigur á Randers í undanúrslitum.

Randers vann reyndar seinni leik liðanna í undanúrslitarimmunni í dag, 27-26, en Team Tvis vann fyrri leikinn með fjögurra marka mun og kemst því áfram á samanlögðum sigri.

Þórey Rósa Stefánsdóttir, sem skoraði átta mörk í fyrri leiknum, skoraði þrjú mörk í dag. Rut Jónsdóttir var ekki á meðal markaskorara liðsins.

Team Tvis mætir annað hvort Viborg eða Midtjylland í úrslitaleiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×