Handbolti

Þúsundir manna fylgdust með Kiel vinna Veszprem á risaskjá

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mynd / facebook síða Kiel
Kiel komst í gær í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu eftir magnaðan sigur, 29-28, á Veszprem í Ungverjalandi. 

Kiel er sigursælasta handknattleikslið Þýskalands frá upphafi og á félagið gríðarlega marga stuðningsmenn.

Á meðan leiknum stóð í gær gerðu sér mörg þúsund manns ferð í Sparkassen-höllina í Kiel til að fylgjast með leiknum.

Stemmningin var frábær og mætingin góð eins og sjá má á myndunum með fréttinni hér að ofan.

Kiel vann Meistaradeild Evrópu á síðustu leiktíð ásamt öllum öðrum titlum sem í boði voru.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×