Handbolti

Róbert og Ásgeir Örn meistarar í Frakklandi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Róbert Gunnarsson í leik með PSG.
Róbert Gunnarsson í leik með PSG. Mynd. / AFP
Róbert Gunnarsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson í Paris Saint-Germain urðu franskir meistarar í gærkvöldi eftir fínan sigur á Cesson-Rennes, 32-27, en leikurinn fór fram á heimavelli Rennes.

PSG er með níu stiga forkost á næsta lið í deildinni þegar fjórar umferðir eru eftir af deildarkeppninni, því er titillinn þeirra.

Liðið er í efsta sæti deildarinnar með 42 stig en Montpellier er í því öðru með 33 stig.

Róbert Gunnarsson gerði tvö mörk fyrir PSG í gær en Ásgeir Örn komst ekki á blað. Mikkel Hansen var atkvæðamestur hjá meisturunum með tíu mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×