Handbolti

Erlingur með tilboð frá Austurríki

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Erlingur er hér til hægri.
Erlingur er hér til hægri. Mynd/Vilhelm
Erlingur Richardsson, þjálfari ÍBV, gæti verið á leið í þjálfun í Austurríki en hann er með tilboð frá liði þar í landi.

SG Insignis Handball Westwien leikur í efstu deild í Austurríki en Erlingur segir við Sport.is að tilboðið sé afar spennandi.

Erlingur gerði HK að Íslandsmeisturum í fyrra ásamt Kristni Guðmundssyni og kom svo ÍBV upp í efstu deild nú í vor. Hann hefur einnig verið einn aðstoðaramanna Arons Kristjánssonar hjá íslenska landsliðinu.

Geir Sveinsson þjálfar nú í austurrísku deildinni en hann starfar hjá Bregenz, gamla liði Dags Sigurðssonar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×