Handbolti

Fjórir Íslendingar í undanúrslitum EHF-bikarsins

Alexander Petersson.
Alexander Petersson.
Lærisveinar Guðmundar Guðmundssonar hjá Rhein-Neckar Löwen leika gegn Göppingen í undanúrslitum í EHF-bikarsins en dregið var í morgun.

Í hinni viðureigninni mætast franska liðið Nantes, sem Gunnar Steinn Jónsson leikur með, og danska liðið Team Tvos Holstebro.

Alexander Petersson og Stefán Rafn Sigurmannsson leika með Löwen þannig að Ísland mun eiga fjóra fulltrúa á úrslitahelginni sem haldin verður í Nantes.

Leikirnir fara fram laugardaginn 18. maí og úrslitaleikurinn verður spilaður degi síðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×