Handbolti

Aron hlaut yfirburðakosningu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Aron Pálmarsson var valinn leikmaður aprílmánaðar á heimasíðu þýsku meistaranna í THW Kiel.

Aron hlaut örugga kosningu eða 37,1 prósent atkvæðanna. Næstur kom Christian Zeitz með 13,8 prósent. Guðjón Valur Sigurðsson varð fimmti með 5,7 prósent atkvæðanna en alls tóku 2259 manns þátt.

Aron kemur ekki til greina sem leikmaður maímánaðar en hann varð í gær þýskur meistari annað árið í röð með liði sínu. Kiel er einnig ríkjandi bikarmeistari og er komið í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×