Handbolti

Florentina á leið frá ÍBV

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Florentina Stanciu.
Florentina Stanciu. Mynd/Valli
Allar líkur eru á því að Florentina Stanciu, markvörður ÍBV, muni yfirgefa herbúðir félagsins nú í sumar.

Þetta kemur fram á handbolti.org í dag. Sindri Ólafsson, formaður handknattleiksdeildar ÍBV, sagði að hún hefði ekki verið ánægð með samningstilboð ÍBV.

Sindri reiknaði því ekki með því að hún myndi spila áfram með ÍBV og ljóst að Florentina yrði eftirsóttur leikmaður á markaðnum í sumar.

Samkvæmt sömu frétt eru þó sögusagnir um að hún muni mögulega snúa aftur til Rúmeníu, síns heimalands, en Florentina fékk íslenskan ríkisborgararétt fyrr á þessu ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×