Handbolti

Ólafur Bjarki flottur í sigri Emsdetten

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ólafur Bjarki í leik með Emsdetten.
Ólafur Bjarki í leik með Emsdetten.
Íslendingaliðið Emsdetten vann fínan sigur, 28-23, á Nordhorn-Lingen í þýsku B-deildinni í handknattleik.

Staðan í hálfleik var 14-11 fyrir gestina í Emsdetten og gáfu þeir ekkert eftir í þeim síðari. Ólafur Bjarki Ragnarsson gerði fjögur mörk fyrir Emsdetten og Ernir Hrafn Arnarson skoraði tvö.

Liðið er í öðru sæti deildarinnar og er þegar búið að tryggja sér sæti í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×