Innlent

Kiel nálgast titilinn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Guðjón Valur í leik með Kiel
Guðjón Valur í leik með Kiel Mynd. / Getty Images
Kiel lagði grunninn að þýska meistaratitlinum með fínum sigri, 31-28, á Lemgo en heimamenn í Lemgo vour þremur mörkum yfir í hálfleik.

Útlitið var svart fyrir gestina í Kiel í upphafi síðari hálfleiksins þegar Lemgo komst fjórum mörkum yfir 18-14.

Meistararnir breyttu því næst stöðunni í 19-19 og eftir það var ekki aftur snúið. Liðið vann að lokum þriggja marka sigur.

Aron Pálmarsson og Guðjón Valur Sigurðsson gerðu báðir tvö mörk fyrir Kiel í leiknum en þjálfari liðsins er Alfreð Gíslason.

Kiel hefur þriggja stiga forskot á Rhein-Neckar Löwen á toppi deildarinnar en enn eru fjórar umferðir eftir af deildarkeppninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×