Hólmfríður skoraði og Guðbjörg hélt hreinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. maí 2013 14:59 Hólmfríður Magnúsdóttir. Mynd/Stefán
Íslensku landsliðskonurnar og vinkonurnar Hólmfríður Magnúsdóttir og Guðbjörg Gunnarsdóttir voru í sviðsljósinu þegar Avaldsnes vann 2-0 heimasigur á Sandviken í norsku kvennadeildinni í dag. Íslendingaliðin Arna Bjørnar, Kolbotn og Vålerenga töpuðu öll stigum á heimavelli. Hólmfríður Magnúsdóttir skoraði seinna mark Avaldsnes í 2-0 sigri á Sandviken en markið hennar kom á 69. mínútu leiksins. Guðbjörg Gunnarsdóttir stóð í marki liðsins og þær Mist Edvarsdóttir og Þórunn Helga Jónsdóttir voru einnig í byrjunarliðinu. Hólmfríður hefur nú skorað fjögur mörk á tímabilinu og sigurinn kemur liðinu upp í 5. sætið. Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir lék allan leikinn með Arna Bjørnar sem gerði 2-2 jafntefli við Klepp á heimavelli. Gunnhildur Yrsa hefur verið fastamaður í sumar en liðið datt niður í 7. sæti deildarinnar. Fanndís Friðriksdóttir var í byrjunarliði Kolbotn sem tapaði 0-4 á heimavelli á móti toppliði Stabæk en Kolbotn er áfram í 3. sæti deildarinnar. Sandra Sif Magnúsdóttir var í byrjunarliði Vålerenga sem gerði 3-3 jafntefli á heimavelli á móti Amazon Grimstad. Norska landsliðskonan Solveig Gulbrandsen skoraði tvö af mörkum Vålerenga í leiknum. Sandra Sif fékk gula spjaldið á 89. mínútu.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið „Horft illum augum á þannig taktík í hlaupaheiminum“ Sport Yfirgaf æfingaferð Marseille í áfalli Fótbolti Tilfinningaþrungin stund þegar Magnús Máni kom í mark Sport Pólverjar bæta við sig Kana fyrir EM Körfubolti Sjáðu markaveislu Arsenal og fullkomna byrjun Tottenham Fótbolti Vann hálft maraþon, fæddi barn og varð svo meistari í heilu maraþoni Sport Næst yngsti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Sport Kom inn á fyrir Dag, skoraði og kýldi mótherja Fótbolti Guðlaugur Victor til Danmerkur á ný Fótbolti Magnaður sigur Dags í Vestratreyju: „Núna er bara stefnan sett á ÓL“ Sport Fleiri fréttir Onana með í dag en Man. Utd að landa markverði Sjáðu Brynjólf skora gegn meisturum PSV Kom inn á fyrir Dag, skoraði og kýldi mótherja Sjáðu markaveislu Arsenal og fullkomna byrjun Tottenham Guðlaugur Victor til Danmerkur á ný Yfirgaf æfingaferð Marseille í áfalli Keflvíkingar létu mörkunum rigna gegn Völsungi Sjálfsmark í blálokin bjargaði Börsungum Þórsarar á toppinn Orðinn langþreyttur á glímunni við Útlendingastofnun Eze í treyju númer tíu og byrjar á stórleik við Liverpool Þrír leikir í enska: Draumabyrjun Outtara en gömlu félagarnir unnu líka Öruggur sigur Arsenal á nýliðunum Þróttur fær tvo tíma á toppnum og Fylkir úr fallsæti Ronaldo þarf enn að bíða eftir titli þrátt fyrir tímamótamark Hjörvar fékk treyju með kveðju frá De Gea í beinni Skelfileg mistök City og fullkomin byrjun Spurs Valgeir fékk að spila og lagði strax upp í fyrsta sigrinum Sjáðu „fólkið frá þessum stað“ fagna í alvöru gæsahúðarmyndbandi Aurier í bann vegna lifrarbólgu Myndaveisla frá sögulegri stund Vestra Sjáðu markaveisluna hjá Chelsea í Austur-Lundúnum „Greenwood fékk annað tækifæri en ekki sonur minn“ Potter niðurlútur: „Ekki margt jákvætt“ „Það er æfing á morgun“ „Flottasta mark sem ég hef skorað á ferlinum“ Patrick sleit hásin og verður frá út tímabilið „Lið úr bæ þar sem eru fleiri fiskar og kindur en fólk“ Uppgjörið: Valur - Vestri 0-1 | Vestri bikarmeistari í fyrsta sinn Chelsea svaraði með fimm mörkum og pressan á Potter eykst Sjá meira