Handbolti

Þórir meistari í Póllandi

Leikmenn Kielce fagna í kvöld.
Leikmenn Kielce fagna í kvöld.

Þórir Ólafsson og félagar í pólska liðinu Kielce urðu í kvöld Póllandsmeistarar í handbolta og vörðu titil sinn frá því í fyrra.

Liðið vann þá sigur á Wisla Plock, 27-24, og einvígið gegn liðinu, 3-0. Yfirburðir Kielce miklir.

Þórir komst ekki á blað í kvöld. Næsta verkefni hjá liðinu er undanúrslit í Meistaradeildinni þar sem Kielce leikur gegn Barcelona.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×