Tiger Woods segist vera búinn að leggja deiluna við Sergio Garcia til hliðar. Það skiptir hann engu máli hvort þeir ræði um málið eður ei.
"Þetta mál er bara búið," sagði Tiger en þeir félagar mætast á US Open eftir tvær vikur.
Woods segist ekkert hafa rætt málið við Garcia þó svo Spánverjinn hafi sýnt áhuga á því að hringja í hann og biðjast afsökunar á "kjúklingaummælunum" sem hann missti út úr sér
Woods tók þeim ummælum mjög illa og skrifaði um málið á Twitter þar sem hann sagði ummælin vera særandi. Hann bætti þó við að hann teldi afsökunarbeiðni Garcia vera einlæga.
Tiger hættur að hugsa um Garcia

Tengdar fréttir

Deila Tiger og Garcia er heimskuleg
Golfgoðsögnin Jack Nicklaus er ekki hrifinn af deilu Tiger Woods og Sergio Garcia sem mikið hefur verið fjallað um í fjölmiðlum síðustu vikur.

Tiger ætlar ekki að hringja í Garcia
Það andar köldu á milli kylfinganna Tiger Woods og Sergio Garcia þessa dagana. Á það rætur að rekja til atviks á Players-meistaramótinu á dögunum.

Garcia vill bjóða Tiger upp á djúpsteiktan kjúkling
Kylfingurinn Sergio Garcia er miður sín eftir að hafa látið umdeild ummæli falla um Tiger Woods fyrr í vikunni.