Handbolti

Kiril Lazarov til Barcelona

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Nordicphotos/AFP

Makedóníumaðurinn Kiril Lazarov er genginn í raðir Spánarmeistara Barcelona í handbolta.

Handboltastórstjörnur heimsins virðast flykkjast til Barcelona. Frakkinn Nikola Karabatic samdi við Börsunga í vikunni og nú eru Katalónarnir komnir með líklega bestu hægri skyttu í heiminum.

Lazarov kemur frá Atletico Madrid þar sem hann hefur spilað undanfarin þrjú ár. Með Lazarov innanborðs komst liðið tvívegis í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. Atletico á í miklum fjárhagserfiðleikum og hafa stórstjörnur flúið félagið undanfarið ár.

Lazarov samdi við Barcelona til tveggja ára.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×