Handbolti

Hamburg Evrópumeistari í fyrsta sinn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hans Lindberg skoraði sex mörk fyrir Hamburg í dag.
Hans Lindberg skoraði sex mörk fyrir Hamburg í dag. Nordic Photos / Getty Images

Þýska liðið Hamburg varð í dag Evrópumeistari í handbolta eftir að hafa unnið sætan sigur á Barcelona í framlengdum úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í Köln, 30-29.

Hamburg kom öllum að óvörum um helgina með því að leggja Kiel að velli í undanúrslitunum í gær. Kiel var ríkjandi meistari og stefndi að því að vinna þrennuna, annað árið í röð.

Liðið hefur áður orðið Evrópumeistari bikarhafa en þetta er í fyrsta sinn sem liðið vinnur Meistaradeildina. Hamburg hafði þrívegis áður komist í undanúrslit en aldrei komist í úrslitaleikinn fyrr en nú.

Johannes Bitter átti stórleik í marki Hamburg og varði sautján skot. Hann varði oft á ögurstundu og sá til þess að Barcelona tókst ekki að jafna muninn í lok framlengingarinnar. Hans Lindberg og Michael Kraus skoruðu sex mörk hvor fyrir Hamburg en Siarhei Rutenka átta fyrir Barcelona. Victor Tomas kom næstur með sjö mörk.

Jafnræði var með liðunum framan af en Börsungar leiddu þó með tveimur mörkum í hálfleik, 11-9. Hamburg virtist svo ætla að sigla öruggum sigri í höfn er liðið skoraði fjögur mörk í röð þegar lítið var eftir af leiknum.

Barcelona svaraði með fjórum mörkum og var staðan jöfn, 25-25, þegar rúm mínúta var eftir af leiknum. Hans Lindberg lét svo verja frá sér þegar hálf mínúta var eftir og Barcelona hélt í sókn. Liðið fékk aukakast á lokasekúndunum en Bitter varði skot  Rutenka. Því þurfti að framlengja leikinn.

Hamburg byrjaði betur í framlengingunni og komst tveimur mörkum yfir. En aftur náði Barcelona að svara fyrir sig og hleypa mikilli spennu í lokamínúturnar.

Lindberg kom svo Hamburg yfir, 30-29, með marki úr vítakasti og Bitter varði svo úr dauðafæri Börsunga þegar mínúta var eftir. Hamburg fór þó illa að ráði sínu í næstu sókn og Barcelona fékk boltann þegar 40 sekúndur voru eftir.

Bitter varði þá aftur úr algjöru dauðafæri en Barcelona náði frákastinu. Daniel Sarmiento tók erfitt skot á lokasekúndunum en skotið fór yfir. Aukakast var dæmt en Rutenka skaut í varnarvegginn.

Hamburg fagnaði því sigri í Meistaradeildinni en Börsungar máttu sætta sig við silfrið í þetta sinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×