Handbolti

Lærisveinar Patreks tryggðu farseðil sinn

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Patrekur hefur náð frábærum árangri með landslið Austurríkis.
Patrekur hefur náð frábærum árangri með landslið Austurríkis.
Austurríska karlalandsliðið í handbolta vann frábæran fimm marka sigur á Rússum í lokaleik 7. riðils í undankeppni Evrópumótsins í handknattleik.

Leikurinn, sem fram fór í Innsbrück, var jafn og spennandi framan og stóðu leikar 12-12 í hálfleik. Í síðari hálfleik sigldu heimamenn fram úr og unnu 30-25 sigur.

Konrad Wilczynski skoraði sex mörk fyrir heimamenn en Timur Didirov skoraði flest mörk fyrir Rússa eða sex.

Austurríki hafnaði í öðru sæti riðilsins og verður því meðal þátttökuþjóða á Evrópumótinu í Danmörku í janúar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×