Handbolti

Uppselt á kveðjuleik Ólafs

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólafur á æfingu í Valsheimilinu í apríl síðastliðnum.
Ólafur á æfingu í Valsheimilinu í apríl síðastliðnum. Mynd/Stefán
Uppselt er á leik Íslands og Rúmeníu í Laugardalshöllinni á sunnudag en það verður kveðjuleikur Ólafs Stefánssonar með landsliðinu.

Leikurinn hefst klukkan 19.45 en Íslandi dugir jafntefli í leiknum til að tryggja sér efsta sæti síns riðils í undankeppni EM 2014.

Ólafur hefur síðustu vikur spilað í Katar en hann mun stýra Val í N1-deild karla á næstu leiktíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×