Handbolti

Aðgerð Gunnars Steins gekk vel

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Gunnar Steinn á sjúkrahúsinu í Frakklandi.
Gunnar Steinn á sjúkrahúsinu í Frakklandi. Mynd/Twitter
Handknattleikskappinn Gunnar Steinn Jónsson gekkst í dag undir aðgerð á öxl. Að eigin sögn gekk aðgerðin vel.

„Allt fór vel," skrifaði Gunnar Steinn við myndina að ofan sem hann birti á Twitter-síðu sinni í dag. Gunnar Steinn hefur glímt við meiðsli á öxl í nokkurn tíma og sagði í gær að aðgerðin væri löngu tímabær.

Keppnistímabilinu í Frakklandi er lokið svo leikstjórnandinn getur hvílt öxlina fyrir átökin á næsta tímabili með Nantes.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×