Handbolti

Gunnar Steinn í aðgerð á öxl

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Gunnar Steinn fagnar marki í leik með Nantes.
Gunnar Steinn fagnar marki í leik með Nantes. Mynd/Heimasíða Nantes

Handknattleikskappinn Gunnar Steinn Jónsson gengst á morgun undir uppskurð til að vinna bug á axlarmeiðslum sínum.

Leikstjórnandinn tilkynnti þetta á Twitter-síðu sinni í kvöld. Þar segir hann meiðslin í sjálfu sér minniháttar en aðgerðin löngu tímabær.

Gunnar Steinn hefur lék vel með Nantes undir lok tímabilsins og var á dögunum valinn í lið umferðarinnar í frönsku deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×