Handbolti

Fóru létt með Rúmena

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá viðureign Íslands og Slóveníu í Laugardalshöll.
Frá viðureign Íslands og Slóveníu í Laugardalshöll. Mynd/Vilhelm

Slóvenar unnu öruggan níu marka útisigur á Rúmeníu í hinum leik 6. riðils undankeppni EM í handbolta í dag.

Gestirnir frá Slóveníu höfðu þriggja marka forystu í hálfleik 14-11 en sigldu öruggum sigri í hús í síðari hálfleik. Lokatölurnar urðu 31-22.

Slóvenar verða að vinna sigur á Hvíta-Rússlandi í lokaumferð riðlakeppninnar. Rúmenar halda hins vegar til Íslands stigalausir fyrir leik þjóðanna á sunnudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×