Fótbolti

Mascherano skammast sín

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images

Javier Mascherano segist miður sín vegna rauða spjaldsins sem hann fékk í leik með argentínska landsliðinu í gær.

Mascherano fékk rautt fyrir að sparka í sjúkraflutningamann eins og fjallað var um í morgun.

„Ég skammast mín. Ég vil ekki valda svona uppákomum. Ég er nógu mikill maður til að viðurkenna mín mistök,“ sagði Mascherano eftir leikinn. Hann segir þó að ökumaður „hnjaskvagnsins“ hafi verið að aka glannalega.

„Hann ók of hratt og hann var við það að fara á hliðina. Ég varaði hann við og hann hunsaði mig. En það réttlætir ekki það sem ég gerði.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×