Handbolti

Sonur Dujshebaev fer til Atlético Madrid

Stefán Árni Pálsson skrifar
Talant Dujshebaev
Talant Dujshebaev Mynd. / Getty Images

Handknattleiksmaðurinn Alex Dujshebaev mun leika með Atlético Madrid á næsta tímabili en faðir hans Talant Dujshebaev er þjálfari liðsins.

Alex Dujshebaev hefur verið á mála hjá spænska félaginu Aragón.

Talant Dujshebaev hefur gert frábæra hluti sem þjálfari en hann stýrði Ciudad Real í mörg ár og meðal annars þegar Ólafur Stefánsson var á mála hjá liðinu.

Þjálfarinn var einnig magnaður handknattleiksmaður en hann lék með Hvít-Rússum og Spánverjum á sínum landsliðsferli.

Hann var í tvígang kjörinn besti leikmaður heims. Sonurinn þarf því ekki að sækja hæfileikana langt.

Alex DujshebaevMynd / Heimasíða Athletico Madrid



Fleiri fréttir

Sjá meira


×