Handbolti

Kristín áfram hjá Val

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kristín Guðmundsdóttir, leikstjórnandi hjá Val, framlengdi í dag samning sinn við félagið um eitt ár.

Þetta var staðfest á heimasíðu Vals. Kristín hefur verið í lykilhlutverki hjá Val undanfarin ár og einn reynslumesti leikmaður N1-deildar kvenna.

Hún var ekki með á síðasta tímabili vegna barneigna en verður hluti af sterku liði Vals í N1-deild kvenna á því næsta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×