Handbolti

Atli Ævar til Norsjælland

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Stefán
Línumaðurinn Atli Ævar Ingólfsson er genginn til liðs við danska úrvalsdeildarliðið Nordsjælland og munu því tveir Íslendingar spila með liðinu á næstu leiktíð.

Anton Rúnarsson samdi við Nordsjælland á dögunum en þeir voru einnig samherjar hjá SönderjyskE á síðustu leiktíð.

„Hann skoraði fjögur mörk í landsleiknum gegn Rúmeníu á dögunum og sýndi þá hversu hæfileikaríkur hann er,“ sagði þjálfarinn Ian Marko Fog við danska fjölmiðla í dag.

„Hann er landsliðsmaður, varð Íslandsmeistari [með HK] og var tvisvar valinn besti línumaður íslensku deildarinnar. Það er gott að fá mann með reynslu í okkar unga lið.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×