Nýr Audi A8 Finnur Thorlacius skrifar 19. ágúst 2013 11:15 Næsta kynslóð Audi A8 er rennileg
Audi mun kynna fjórðu kynslóð A8 bílsins á bílasýningunni í Frankfürt sem hefst eftir 3 vikur og bíða margir spenntir eftir að sjá gripinn með eigin augum. A8 bíllinn hefur talist flaggskip Audi síðan hann fyrst leit dagsins ljós árið 1994, enda stærsta gerð fólksbíla fyrirtækisins. Núverandi þriðja kynslóð A8 kom árið 2010, en fyrsta árgerð þeirrar fjórðu verður af árgerð 2015 en kemur á markað á næsta ári. Audi hefur sagt að nýi bíllinn verði enn hæfari akstursbíll sem hlaðinn verður nýjungum og lúxus. Af myndinni af nýja bílnum að dæma verður breytingin á ytra útliti hans meiri en varð á milli tveggja síðustu kynslóða. Bíllinn mun má fá ný Matrix LED aðalljós sem styðst við nýja tækni þar sem ljósin aðlaga styrk sinn eftir aðstæðum og birtu. Ef bíllinn mætir öðrum bíl í myrkri minnkar ljósstyrkurinn til þæginda fyrir þann sem á móti kemur. Ekki er búist við neinum breytingum í vélarframboði og því verði 3,0 og 4,0 lítra TFSI bensínvélarnar áfram í boði, sem og W-12, 6,3 lítra bensínvélin. Sex strokka, 3,0 lítra dísilvélin er svo enn einn vélarkosturinn. Audi A8 hefur fengið sterkan samkeppnisaðila í formi nýrrar gerðar Mercedes Benz S-Class og því hefur Audi vafalaust flýtt sér að kynna þessa nýju kynslóð A8.
Mest lesið Vanþekking ráðherra sé áhyggjuefni Innlent Ásthildur Lóa setur húsið umdeilda á sölu Innlent Deildi hernaðarupplýsingum í öðru spjalli með konu sinni og bróður Erlent „Þeir liggja hérna eins og hráviði út um allt“ Innlent Ræddi við foreldra og hætta við miklar hækkanir Innlent Margar fjölskyldur fastar í fátækt svo árum skiptir Innlent Segja samfélagsmiðla valda auknu kvenhatri og rasisma í skólum Erlent Móðirin hafi þurft að sárbæna hann til að hitta barnið á spítala Innlent Trump-stjórnin virðist ekki hafa neitt plan Innlent Viðbragð lögreglu og sjúkraflutningamanna í nágrenni Selfoss Innlent